Tammy Abraham, framherji Chelsea, varð fyrir kynþáttafordómum eftir leikinn gegn Liverpool í Ofurbikarnum í gærkvöldi.
Abraham var eini leikmaðurinn sem klikkaði á vítapunktinum í vítaspyrnukeppni en Adrian varði spyrnu hans.
Abraham var eini leikmaðurinn sem klikkaði á vítapunktinum í vítaspyrnukeppni en Adrian varði spyrnu hans.
Eftir leikinn fékk Abraham ljót skilaboð á Twitter en um var að ræða kynþáttafordóma.
„Við sendum stuðning okkar til Tammy og köllum aftur eftir því að Twitter og aðrir samfélagsmiðlar geri sitt besta til að koma í veg fyrir svona," sagði í yfirlýsingu frá Kick it out, samtökum gegn kynþáttafordómum í enska boltanum.
Athugasemdir