Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 15. ágúst 2019 13:22
Elvar Geir Magnússon
Özil og Kolasinac mættir aftur - Emery segir þá klára í slaginn
Kolasinac og Özil.
Kolasinac og Özil.
Mynd: Getty Images
Mesut Özil og Sead Kolasinac eru mættir aftur til æfinga hjá Arsenal en þeir hafa verið fjarverandi af öryggisástæðum.

Özil og Kolasinac léku ekki með Arsenal í 1-0 útisigrinum gegn Newcastle í fyrstu umferð.

Unai Emery, stjóri Arsenal, fagnar því að fá tvímenningana aftur og segist 100% viss um að þeir séu andlega klárir í að spila gegn Burnley í hádeginu á laugardag.

Kolasinac og Özil lentu í hræðilegri lífsreynslu í lok júlí er tveir menn vopnaðir hnífum reyndu að ræna þá. Kolasinac barðist á móti og flúðu árásarmennirnir vettvang. Báðir sluppu ómeiddir en lögreglan rannsakar málið.

Þeir og fjölskyldur þeirra hafa fengið hótanir í kjölfarið og hafa lífverðir fylgt þeim hvert fótmál.
Athugasemdir
banner
banner
banner