Fotbolti.net
15.08.19 - 16:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Zaniolo og Cengiz framlengja við Roma

Nicolo Zaniolo.

Nicolo Zaniolo.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn tvítugi Nicolo Zaniolo framlengdi samningi sínum við Roma til 2024. Hann fær umtalsverða launahækkun.

<i>„Það var auðvelt fyrir mig að velja Roma fyrir ári síðan og það var enn auðveldari ákvörðun að framlengja eftir að hafa orðið ástfanginn af treyjunni og borginni,"</i> segir Zaniolo.

Ítalski landsliðsmaðurinn kom frá Inter í fyrra en á sínu fyrsta tímabili með Roma skoraði hann sex mörk og átti tvær stoðsendingar í 36 leikjum.
Þá hefur tyrkneski landsliðsmaðurinn Cengiz Under gert nýjan samning við Roma til 2022. Þessi 22 ára leikmaður var orðaður við Everton og Bayern München í sumar en framtíð hans er hjá Roma.

Roma hafnaði í sjötta sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili og leikur í Evrópudeildinni í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.