Endurkomu íslenska boltans verður fagnað í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Þátturinn er alla laugardaga milli 12 og 14.
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Úlfur Blandon verða í hljóðverinu og fara yfir allt sem er í gangi í íslenska boltanum.
Rýnt verður í föstudagsleikina í Pepsi Max-deildinni og Lengjudeildinni og skoðað hvað er framundan. Farið verður yfir helstu fréttir og slúðursögur gluggans.

Daníel Hafsteinsson, hetja FH gegn KR, verður á línunni og rætt verður við Gumma Ben um slátrun Bayern gegn Barcelona í Meistaradeildinni.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir