Barnsley 0 - 2 Leeds
0-1 Eddie Nketiah ('84 )
0-2 Mateusz Klich ('89 , víti)
0-1 Eddie Nketiah ('84 )
0-2 Mateusz Klich ('89 , víti)
Leeds United vann góðan 2-0 útisigur á Barnsley í 7. umferð ensku B-deildarinnar í dag.
Leikurinn var stál í stál en Brad Collins, markvörður Barnsley, og Kiko Casilla, markvörður Leeds, þurftu að hafa fyrir hlutunum í dag og áttu margar góðar vörslur áður en Leeds kláraði þetta á síðustu metrunum.
Eddie Nketiah skoraði á 84. mínútu fyrir Leeds. Fjórða mark hans í sex leikjum fyrir félagið frá því hann kom á láni frá Arsenal. Mateusz Klich bætti við öðru með marki úr víti á 89. mínútu og þar við sat.
Leeds er á toppnum með 16 stig eftir fyrstu sjö leikina en Barnsley í 22. sæti með 5 stig.
Athugasemdir