Fotbolti.net
15.09.20 - 19:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Deildabikarinn: Luton mætir Man Utd og Barnsley heimsækir Chelsea

Sigri fagnað hjá Luton (gegn Hull í sumar)

Sigri fagnað hjá Luton (gegn Hull í sumar)

Canon

Mynd: Getty Images

Þremur leikjum er lokið í 2. umferð enska deildabikarsins, Carabao Cup. Í þessari umferð koma inn þau félög í úrvalsdeildinni sem taka ekki þátt í Evrópukeppnum. Í 3. umferð mæta svo stóru liðin til leiks.

Millwall lagði Cheltenham, Reading tapaði gegn Luton á heimavelli og Barnsley vann útisigur á Boro. Alls fara sextán leikir fram í kvöld.

Vitað var fyrir leiki kvöldsins að sigurvegari einvígis Reading og Luton tæki á móti Manchester United í næstu umferð. Millwall tekur á móti Sheffield United eða Burnley og Barnsley heimsækir Chelsea. 3. umferðin fer fram í næstu viku.

Jón Daði Böðvarsson var á varamannabekk Millwall og kom ekki við sögu í leiknum.
Millwall 3 - 1 Cheltenham Town
1-0 Ryan Leonard ('19 )
2-0 Connor Mahoney ('48 )
3-0 Matt Smith ('62 )
3-1 Finn Azaz ('69 )

Reading 0 - 1 Luton
0-1 Jordan Clark ('24 )

Middlesbrough 0 - 2 Barnsley
0-1 Patrick Schmidt ('22 )
0-2 Jordan Williams ('34 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.