Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. september 2020 09:20
Magnús Már Einarsson
Man Utd gæti reynt að fá Bale á láni
Mynd: Getty Images
Manchester United er að skoða aðra möguleika ef að félaginu tekst ekki að klófesta Jadon Sancho frá Dortmund.

Sky Sports segir frá því í dag að United gæti reynt að fá Gareth Bale á láni frá Real Madrid ef Sancho kemur ekki.

Dortmund vill fá 108 milljónir punda fyrir Sancho en United er ekki tilbúið að greiða svo mikið.

Ef Sancho kemur ekki gæti United fengið Bale á láni auk þess að kaupa annan ungan leikmann.

Hinn 31 árs gamli Bale er úti í kuldanum hjá Real Madrid en hann er með góðan samning og hefur ekki ennþá viljað færa sig um set.
Athugasemdir
banner
banner