Andrea Pirlo, þjálfari Ítalíumeistara Juventus, hefur verið kosinn kynþokkafyllsti stjóri deildarinnar. Eusebio Di Francesco, þjálfari Cagliari og Pippo Inzaghi, þjálfari Benevento koma í næstu sætum fyrir neðan.
Könnunin var haldin á stefnumótasíðu í Ítalíu sem kallast JoyClub. Pirlo fékk 23% atkvæða í könnuninni.
Di Francesco fékk 15% og Inzaghi 14%. Gennaro Gattuso, þjálfari Napoli tók fjórða sæti og Paul Fonseca, þjálfari Roma það fimmta.
Pirlo á enn eftir að stjórna sínum fyrsta leik hjá Juventus en ítalska deildin fer af stað á laugardaginn næstkomandi.
Athugasemdir