Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. október 2021 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Alveg sama hvað leikmaðurinn heitir nema hann heiti Messi"
Mynd: EPA
Sergio Aguero fór frá Manchester City til Barcelona í sumar.

Tækifærin voru orðin af skornum skammti hjá City en félagið framlengdi ekki samninginn hans og því var honum frjálst að yfirgefa félagið þegar samningurinn rann út í sumar.

Aguero segir að hann og Guardiola hafi ekki alltaf verið sammála en þeir hafi þó aldrei rifist.

„Hann er þjálfari sem vill alltaf það besta frá öllum. Ef hann er með hugmynd í hausnum framkvæmir hann hana. Honum er alveg sama ef hann skilur eftir leikmann sem hafði skorað þrennu í síðasta leik. Honum er alveg sama hvað leikmaðurinn heitir nema ef hann heitir Messi."

Aguero var í tíu tímabil hjá City og skoraði 260 mörk í 390 leikjum.
Athugasemdir
banner