15.11.14 - 14:54
Elvar Geir Magnússon
Atli Arnarson í Leikni (Staðfest)

Atli Arnarson.

Mynd: Leiknir.com

Atli Arnarson.

Mynd: Leiknir.com
Miðjumaðurinn Atli Arnarson er genginn í raðir Leiknis frá Tindastóli en frá þessu er greint á heimasíðu Breiðholtsliðsins.
Atli hefur verið lykilmaður hjá Tindastóli en eftir að hafa slitið krossband lék hann ekkert á liðnu tímabili.

Atli á 81 leik í deildarkeppni með Tindastóli og hefur skorað í þeim 11 mörk.
„Leiknir býður Atla hjartanlega velkominn í félagið og býst við miklu af honum á komandi árum,\" segir á heimasíðu Leiknis.
Leiknir vann 1. deildina síðasta sumar og leikur í Pepsi-deildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins á næsta ári.