15.11.14 - 18:05
Magnús Már Einarsson
Finnur Ólafs í Víking (Staðfest)

Finnur með Milos Miljovevic öðrum af þjálfurum meistaraflokks og Heimi Gunnlaugssyni formanni meistaraflokksráðs.

Mynd: Víkingur

Víkingur hefur fengið miðjumanninn Finn Ólafsson í sínar raðir frá Fylki en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í kvöld.
,,Knattspyrnudeild Víkings lýsir yfir ánægju með að hafa samið við miðjumanninn Finn Ólafsson fyrrum leikmann Fylkis um að leika með Víkingi næstu árin,\" segir í fréttatilkynningu frá Víkingi.
Finnur lék sinn fyrsta meistaraflokksleik sumarið 2003 og hefur síðan þá skorað 12 mörk í 190 meistaraflokksleikjum fyrir Fylki, ÍBV og HK.
Fleiri félög höfðu áhuga á að klófesta hinn þrítuga Finn en hann ákvað að ganga til liðs við Víking.
Víkingur er á leið í Evrópudeildina næsta sumar en í vetur hefur félagið einnig samið við Hauk Baldvinsson, Hallgrím Mar Steingrímsson, Andra Rúnar Bjarnason og Atla Fannar Jónsson.