Fotbolti.net
15.11.14 - 13:43
Alexander Freyr Tamimi
- Leikmannamál

Rasmus Christiansen semur við KR (Staðfest)

Rasmus var frábær í liði ÍBV á sínum tíma.

Rasmus var frábær í liði ÍBV á sínum tíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR hefur náð samkomulagi við Rasmus Christiansen um að hann gangi til liðs við félagið eftir áramót. Þetta staðfesti Baldur Stefánsson, varaformaður knattspyrnudeildar, við Fótbolta.net rétt í þessu.
Danski miðvörðurinn hafði verið orðaður við KR undanfarið, en hann lék með ÍBV frá 2010-2012 og var einn besti varnarmaður Pepsi-deildarinnar á þeim tíma.

Síðustu tvö ár hefur hann leikið með Ull/Kisa í norsku B-deildinni en hann fór í aðgerð eftir krossbandaslit í sumar.

Rasmus og KR komust að samkomulagi um tveggja ára samning í gær. Hann mun svo skrifa undir samninginn í janúar þegar hann er búinn að fara í læknisskoðun.

Daninn hafði nú þegar farið í eina læknisskoðun, en til að vera öruggir á því að krossbandameiðslin séu að baki, þá mun hann fara í aðra slíka eftir áramót og í kjölfarið verður skrifað undir samninga.

Það þarf því mikið að gerast til að Rasmus Christiansen verði ekki leikmaður KR á næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.