Rafael Benítez, fyrrum stjóri Liverpool, Chelsea og Newcastle, segist ætla að starfa aftur á Englandi einn daginn.
Benítez hætti hjá Newcastle í sumar og tók við Dalian Yifang í Kína.
Fjölskylda Spánverjans býr ennþá á Englandi og hann ætlar að snúa aftur til starfa þar í framtíðinni.
Benítez hætti hjá Newcastle í sumar og tók við Dalian Yifang í Kína.
Fjölskylda Spánverjans býr ennþá á Englandi og hann ætlar að snúa aftur til starfa þar í framtíðinni.
„Í framtíðinni mun ég koma aftur til Englands," sagði Benítez.
„Ég er ánægður hér. Ég vil ekki fara aftur til baka núna en ég vil gera það í framtíðinni."
Athugasemdir