Fotbolti.net
15.12.14 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

Nigel Adkins rekinn frá Reading (Staðfest)

Nigel Adkins er atvinnulaus.

Nigel Adkins er atvinnulaus.

Canon

Mynd: Getty Images

Nigel Adkins hefur verið rekinn úr stöðu sinni sem knattspyrnustjóri Reading.

Sky Sports staðfestir að Adkins hafi verið rekinn eftir 6-1 tap gegn Birmingham á laugardaginn.
Reading er í neðri hluta Championship deildarinnar með 25 stig, aðeins 7 stigum frá fallsvæðinu, og er stjórn félagsins gríðarlega ósátt. Liðið er þó aðeins tíu stigum frá umspilssæti og því enn góður möguleiki á að komast upp í Úrvalsdiled.

Adkins stýrði Southampton frá 2010 og tók við Reading eftir að hafa verið rekinn og skipt út fyrir Mauricio Pochettino, sem er nú stjóri Tottenham, í janúar 2013.

Andy Crosby og Dean Wilkins, aðstoðarmenn Adkins hjá Reading, yfirgefa félagið með honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.