Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 15. desember 2019 16:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Duncan um skiptinguna: Ekkert persónulegt - Þurfti að drepa tímann
Mynd: Getty Images
Á 89. mínútu var Moise Kean tekin af velli gegn Manchester United.

Það eitt og sér er ekki mjög fréttnæmt nema fyrir þær sakir að hann kom inn á á 70. mínútu.

Hann spilaði því tæpar tuttugu mínútur sem varamaður. Oumar Niasse var settur inn á fyrir ítalska framherjann undir lok leiks.

Sjá einnig: Ferguson tók Kean af velli innan við 20 mínútum eftir að hafa skipt honum inn á

Í viðtali við Sky Sports eftir leik var Duncan Ferguson, bráðabirgðastjóri Everton, spurður út í skiptinguna. Hann sagði skiptinguna ekki vera persónulega. Hann hafi einungis þurft að drepa smá tíma undir lok leiksins.


Athugasemdir
banner