Haukar staðfestu í gær að tveir ungir leikmenn hefðu nýlega skrifað undir samning við félagið.
Jón Freyr Eyþórsson og Tómas Leó Ásgeirsson skrifuðu undir hjá Haukum. Jón Freyr er tvítugur markvörður, hann varði mark KH í sumar. Hann er uppalinn hjá Val og spilaði með þeim upp alla yngri flokka.
Tómas Leó er 21 árs gamall og getur bæði leikið sem fremsti maður og á vængnum. Tómas er uppalinn hjá Sindra á Höfn og var meðal markahæstu manna 3. deildar á síðasta tímabili.
Haukar féllu úr Inkasso deildinni í haust og spila því í 2. deild á næsta ári.
Jón Freyr Eyþórsson og Tómas Leó Ásgeirsson hafa samið við knattspyrnudeild Hauka og býður stjórn deildarinnar þá innilega velkomna í félagið. Bindum við miklar vonir við þá á komandi tímabili og á næstu árum.
-- Haukar Fótbolti (@FCHaukar) December 14, 2019
Nánar á https://t.co/94egOhg1iZ pic.twitter.com/LujswGzeBI
Athugasemdir