Mo Salah, leikmaður Liverpool, hefur skorað síðustu þrjú mörk sín með hægri fætinum. Salah er örvfættur og ekki þótt frábær með hægri fæti.
Annað mark Liverpool gegn Red Bull Salzburg, í 0-2 sigri á þriðjudaginn í síðustu viku, skoraði Salah og það kom úr mjög þröngu færi með hægri fæti.
Annað mark Liverpool gegn Red Bull Salzburg, í 0-2 sigri á þriðjudaginn í síðustu viku, skoraði Salah og það kom úr mjög þröngu færi með hægri fæti.
Þá skoraði hann bæði mörk Liverpool í 2-0 heimasigri gegn Watford í gær. Bæði skoraði hann með hægri fæti.
„Ég hef verið að æfa hægri löppina," sagði Salah við BT Sport eftir leik í gær.
„Fyrra markið var heppni fyrir okkur. Ég fékk góða sendingu í skyndisókn og markið kom á frábærum tíma fyrir okkur."
„Við spiluðum gegn góðu liði í dag sem gerði okkur erfitt fyrir. Watford ætti, miðað við frammistöðuna í dag, að vera í betri málum í deildinni."
Salah hélt ásamt samherjum sínum til Katar þar sem Liverpool tekur þátt í HM félagslilða næstu vikuna.
Athugasemdir