Fotbolti.net
15.12.19 - 13:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Solskjær: Verðum að sýna stöðugleika

Solskjær: Verðum að sýna stöðugleika
Canon

Mynd: Getty Images

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, gerir enga breytingu á sínu liði, frá sigrinum á Manchester City fyrir rúmri viku síðan, fyrir heimaleik liðsins gegn Everton í dag. Leikurinn hefst klukkan 14:00.

Í hópnum hjá United eru sjö leikmenn sem komu í gegnum akademíu félagsins og segir Ole félagið í heild sinni trúa á það verkefni sem það, að ala leikmenn upp fyrir aðalliðið, er.
Ole var í viðtali fyrir leik einnig spurður út í leikinn í dag. United getur komist í Meistaradeildarsæti með sigri í dag.

„Við verðum að gera nóg til að verðskulda sigur í dag. Það er það eina sem telur á þessum tímapunkti," sagði Solskjær.

„Við verðum að halda áfram að sýna stöðugleika. Það mun á endanum skila okkur. Við getum ekki stýrt úrslitunum en ef við leggjum hart að okkur þá munum við fara ofar í töflunni," sagði Ole að lokum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.