15.12.20 - 23:05
Ívan Guðjón Baldursson
Heimir Þorsteinsson nýr þjálfari Fjarðabyggðar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Heimir Þorsteinsson hefur ákveðið að taka við Fjarðabyggð á nýjan leik en hann stýrði félaginu í um það bil áratug frá 2004 til 2014, með pásum inn á milli.
Heimir mun stýra Austfirðingum í 2. deild á komandi tímabil og hefur þá Vilberg Marinó Jónasson og Stefán Þór Eysteinsson sér til halds og trausts, auk þess að njóta aðstoðar frá Helga Ásgeirssyni.
Undanfarin ár hefur Heimir þjálfað yngri flokka hjá Þrótti í Neskaupstað og þekkir hann því mjög vel til þeirra ungu leikmanna sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistarflokksbaráttunni.
„Það er ekki bara tilhlökkun í heimamönnum að fá Heimi aftur til starfa en kappinn hlakkar mikið til að koma heim eftir vetrardvöl í Reykjavík og takast á við þetta verkefni," segir meðal annars í færslu á Facebook síðu Fjarðabyggðar.

Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar hefur ráðið Heimi Þorsteinsson sem þjálfara meistaraflokks karla fyrir komandi...
Posted by Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar - KFF - Fjarðabyggð on Tuesday, 15 December 2020