Fotbolti.net
15.12.20 - 17:15
Ívan Guðjón Baldursson

Óli Kalli aftur í Stjörnuna (Staðfest)

Óli Kalli aftur í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Ólafur Karl Finsen er kominn aftur í raðir Stjörnunnar eftir þrjú ár með Val og FH á Íslandsmótinu.
Ólafur Karl er 28 ára gamall sóknarmaður sem lék lykilhlutverk í liði Stjörnunnar og skoraði 11 mörk er Garðbæingar unnu Íslandsmótið 2014.

Óli Kalli skipti yfir til Vals fyrir tímabilið 2018 en náði ekki að festa sig í sessi í byrjunarliðinu. Hann lék svo fyrir FH í ár en skoraði aðeins eitt mark.

„Virkilega gott að fá Óla Kalla með sín gæði inn í hópinn, ég hef trú á því að þetta muni styrkja okkur til framtíðar, enda Óli Kalli frábær leikmaður sem getur leyst margar stöður og er með gæði sem munu nýtast okkur í þeirri vegferð sem við erum," sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar við undirskriftina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.