Fotbolti.net
15.12.20 - 22:38
Ívan Guðjón Baldursson

Siggi Raggi nýr yfirmaður knattspyrnumála hjá Keflavík (Staðfest)

Eysteinn Húni og Siggi Raggi á hliðarlínunni í sumar.

Eysteinn Húni og Siggi Raggi á hliðarlínunni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson mun halda áfram sem einn af tveimur aðalþjálfurum Keflavíkur og bætir við sig nýju starfi yfirmanns knattspyrnumála.
Keflavík gerði frábærlega undir stjórn Sigga Ragga og Eysteins Húna Haukssonar í haust og vann Lengjudeildina, með 43 stig úr 19 umferðum. Eysteinn Húni heldur einnig áfram sem þjálfari Keflavíkur.

„Starf yfirmanns knattspyrnumála er viðbót við umgjörð Keflavíkur sem miðar að því að byggja upp sterkari leikmenn og öflugri einstaklinga og er markmiðið að með ráðningunni verði allt faglegt starf innan félagsins samþætt frá yngsta aldursflokki að meistaraflokki," segir meðal annars í frétt á Facebook síðu Keflavíkur.

Siggi Raggi býr yfir mikilli reynslu enda hefur þessi 47 ára gamli fyrrum sóknarmaður komið víða við á ferlinum, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann lék meðal annars fyrir KR, ÍA og Walsall og tók svo við íslenska kvennalandsliðinu í sjö ár.

Hann hefur auk þess verið aðstoðarþjálfari hjá karlaliði Lilleström og aðalþjálfari hjá kvennaliði Jiangsu Suning í Kína og hjá kínverska landsliðinu. Í Kína vann hann bikarinn með Jiangsu Suning og náði bronsverðlaun á Asíuleikunum og kom kínverska landsliðinu á HM. Hann þjálfaði einnig karlalið ÍBV sumarið 2014.

„Ég er sannfærður um að við getum tekið félagið á næsta stig. Við viljum vera með öflug lið og leikmenn og festa okkur í sessi sem félag í efstu deild. Hjá Keflavík er mikið af öflugu og hæfu fólki og ég hlakka mikið til að vinna með því," sagði Siggi Raggi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.