16.01.15 - 13:30
Magnús Már Einarsson
Andri og Reynir til Færeyja eftir auglýsingu á .Net (Staðfest)

Andri Freyr Björnsson.

Mynd: Guðmundur Karl

Andri Freyr Björnsson.

Mynd: Guðmundur Karl
Andri Freyr Björnsson og Reynir Magnússon hafa gengið til liðs við TB Tvøroyri í Færeyjum en liðið komst upp í úrvalsdeild á síðasta tímabili.
Hinn reyndi Páll Guðlaugsson þjálfar TB Tvøroyri en í ágúst síðastliðnum auglýsti liðið eftir íslenskum leikmönnum hér á Fótbolta.net.
Andri Freyr og Reynir gengu í kjölfarið til liðs við TB Tvøroyri.
<i>,,Það er mikil ánægja hér í Tvøroyri með að fá íslenska leikmenn og vona ég að þeim gangi vel,\"</I> sagði Páll við Fótbolta.net í dag.

Andri Freyr er 28 ára gamall vinstri bakvörður sem spilaði með KFR síðastliðið sumar en hann lék einnig lengi með Selfyssingum.
Reynir er 22 ára gamall miðvörður sem er uppalinn hjá Breiðabliki en hann hefur leikið með ÍR undanfarin þrjú ár.