16.01.15 - 12:21
Elvar Geir Magnússon
Bödker og Frederiksen hafa skrifað undir (Staðfest)

Henrik Bödker er kominn til KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sören Frederiksen.

Mynd: Úr einkasafni

Henrik Bödker er kominn til KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur samið við Henrik Bödker sem mun taka að sér stöðu yfirmarkmannaþjálfara KR og aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla, ásamt því að sinna ýmsum öðrum verkefnum fyrir félagið.
KR hefur staðfest þetta á heimasíðu sinni.
Henrik er íslenskum fótboltaáhugamönnum að góðu kunnur enundanfarin ár hefur hann þjálfað hjá Stjörnunni í Garðabæ með góðum árangri. Hann kom fyrst hingað til lands til að spila og lék meðal annars með ÍBV.

„Eftir fjögur frábær ár hjá Stjörnunni fannst mér kominn tími til að takast á við nýjar áskoranir. Ég hef undanfarna mánuði skoðað ýmsa kosti sem mér stóðu til boða en eftir að hafa rætt við KR-inga og nýja þjálfarateymið, þar sem ég fann fyrir miklum áhuga á starfskröftum mínum, er það mat mitt að sú stefna sem unnið er eftir sé afar áhugaverð og spennandi tímar framundan,\" segir Bödker við heimasíðu KR.
„Ég get ekki beðið eftir að halda aftur til Íslands og hefja störf með Bjarna, Gumma og strákunum í liðinu.“
„KR er stærsta liðið í íslenska boltanum\"
Þá hefur KR samið við danska leikmanninn Sören Frederiksen. Sören er 25 ára og kemur frá tvöföldu dönsku meisturunum í Álaborg þar sem hann spilaði 22 leiki á síðasta tímabili, aðallega sem vinstri kantmaður. Sören er fjölhæfur leikmaður sem hefur getið sér gott orð fyrir vinnusemi og getur leyst allar stöður framarlega á vellinum, bæði á vinstri og hægri kanti eða sem framherji.
Sören er uppalinn hjá danska úrvalsdeildarliðinu SönderjyskE þar sem hann lék 80 leiki og skoraði 10 mörk þar til hann var keyptur af danska stórveldinu FC Köbenhavn. Þaðan fór hann til Álaborgar þar sem hann lék 51 leik og skoraði 7 mörk. Hann hefur einnig leikið 12 leiki fyrir U-21 landslið Danmerkur.
„Þegar ég heyrði af möguleikanum á að spila á Íslandi með KR kveikti það strax áhuga. Ég sé spennandi tækifæri í því að kynnast nýju landi og reyna fyrir mér í nýju umhverfi. Íslenskir knattspyrnumenn og íslenska landsliðið hafa að undanförnu náð mjög góðum árangri á alþjóðlegum vettvangi og þar sem KR er stærsta liðið í íslenskri knattspyrnu þá geri ég ráð fyrir að vera að ganga til liðs við mjög gott knattspyrnulið. Þetta verður ný áskorun fyrir mig og ég hlakka til að hefjast handa,“ segir Sören við heimasíðuna en samningur hans gildir út leiktíðina 2016.

Heimild: Heimasíða KR

Sören Frederiksen.

Mynd: Úr einkasafni