Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 16. janúar 2020 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Kærði Theo fyrir nauðgun og er nú eftirlýst
Mynd: Getty Images
Rússneska fyrirsætan Luisa Kremleva kærði Theo Hernandez fyrir nauðgun sem átti að hafa átt sér stað í júní 2017, skömmu eftir að bakvörðurinn skipti frá Atletico Madrid yfir til Real Madrid.

Eftir ítarlega rannsókn var fengin sú niðurstaða í málið að Kremleva væri að ljúga þessu upp á Theo í tilraun til að svindla pening úr honum.

Kremleva og Theo voru að djamma saman á Marbella, Spáni, umrætt kvöld og var Theo aðeins 19 ára gamall.

Eftir að hafa skoðað myndbandsupptökur og samtöl þeirra í smáskilaboðum komst dómari málsins að þeirri niðurstöðu að hér væri ekki um nauðgun að ræða.

Dómari ræddi við saksóknara og ákváðu þeir að höfða mál gegn fyrirsætunni, sem er þó hvergi að finna. Líklegt er að hún sé búin að flýja úr landi en yfirvöldum á Spáni hefur verið gert viðvart og er hún eftirlýst.

Theo var keyptur til AC Milan síðasta sumar og hefur fest sig í sessi sem lykilmaður í liðinu. Svissneski bakvörðurinn Ricardo Rodriguez er því búinn að missa sæti sitt og leitar nú á önnur mið.
Athugasemdir
banner
banner