Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. janúar 2020 09:33
Magnús Már Einarsson
Sjáðu allt það helsta úr leik Íslands og Kanada
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson skoraði eina markið þegar Ísland vann Kanada í vináttulandsleik í Bandaríkjunum í nótt.

Þetta var fyrri leikur Íslands í þessu janúarverkefni en á sunnudagskvöld verður leikur gegn El Salvador.

Davíð Kristján Ólafsson tók hornspyrnu á 21. mínútu og boltinn datt til Hólmars á fjærstönginni og hann náði að skora.

Höskuldur Gunnlaugsson komst nálægt því að tvöfalda forystuna fyrir hlé en staðan 1-0 í hálfleik.

Kanada sótti mun meira í seinni hálfleiknum en varamaðurinn Kristján Flóki Finnbogason komst ansi nálægt því að skora í seinni hálfleiknum. Markvörður Kanada með gríðarlega flotta markvörslu.

Hér að neðan má sjá markið hjá Hólmari og öll helstu atvik leiksins.


Athugasemdir
banner
banner
banner