FH er þessa stundina að spila við Keflavík í A-deild Fótbolta.net mótsins.
Í hópi FH í leiknum er fjórtán ára gamall drengur sem uppalinn er í Bandaríkjunum.
Drengurinn heitir Cole Campbell og var á mála hjá Atlanta United FC.
Hann kom til FH í fyrra en móðir hans er íslensk. Strákurinn þykir mjög efnilegur en fram kemur í frétt 433.is að Cole horfi til þess að spila fyrir Íslands hönd í framtíðinni.
Það fara fram fjórir leikir í Fótbolta.net mótinu í dag.
Laugardagur:
Fótbolta.net mótið - A-deild, riðill 2
11:00 FH-Keflavík (Skessan)
13:30 Breiðablik-Grindavík (Kópavogsvöllur)
Fótbolta.net mótið - B-deild, riðill 1
12:30 Afturelding-Vestri (Fagverksvöllurinn Varmá)
15:00 Haukar-Þróttur V. (Ásvellir)
Athugasemdir