Breiðablik 3 - 0 Grindavík
1-0 Jason Daði Svanþórsson
2-0 Alexander Helgi Sigurðarson
3-0 Damir Muminovic
1-0 Jason Daði Svanþórsson
2-0 Alexander Helgi Sigurðarson
3-0 Damir Muminovic
Breiðablik vann fyrsta leik sinn í Fótbolta.net mótinu en leikurinn var gegn Grindavík á Kópavogsvelli.
Það tók Blika dágóðan tíma að brjóta ísinn og var staðan markalaus í hálfleik. Þegar líða fór á seinni hálfleikinn, þá komu mörkin hjá heimamönnum.
Jason Daði Svanþórsson, sem er á leið inn í sitt fyrsta tímabil með Breiðabliki, skoraði fyrsta mark leiksins og Alexander Helgi Sigurðarson bætti við marki stuttu síðar.
Varnarmaðurinn Damir Muminovic gerði svo þriðja og síðasta markið með síðustu spyrnu leiksins.
Lokatölur 3-0 fyrir Breiðablik en þessi tvö lið eru með FH og Keflavík í riðli. Fyrr í dag vann Keflavík 2-1 sigur á FH í Hafnarfirði.
Athugasemdir