Marseille í Frakklandi er í viðræðum við Napoli vegna framherjans Arkadiusz Milik samkvæmt heimildum Goal.
Milik er að vinna í því að komast burt frá Napoli í janúarglugganum en hann er alls ekki fyrsti maður á blað í dag.
Pólverjinn hefur ekki spilað einn einasta deildarleik á tímabilinu og verður samningslaus næsta sumar.
Napoli mun vilja í kringum 15 milljónir evra fyrir Milik sem er aðeins 26 ára gamall og á nóg eftir.
Möguleiki er á að önnur lið blandi sér í baráttuna um leikmanninn og er Atletico Madrid nefnt til sögunnar.
Milik hefur skorað 38 deildarmörk í 93 leikjum fyrir Napoli á tæplega fimm árum.
Athugasemdir