Rebekka Sverrisdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við KR en þetta kemur fram á Instagram síðu liðsins.
Hin 28 ára gamla Rebekka tók fram skóna að nýju fyrir síðustu leiktíð og spilaði með liðinu nokkra leiki.
Rebekka sem er uppalinn leikmaður í KR á að baki 119 leiki með meistaraflokki, flesta með KR en hún spilaði líka með Val 2014-2016.
„Rebekka er mjög öflugur leikmaður, frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn og því mikil fengur fyrir félagið að fá hana aftur í sínar raðir. Bjóðum við hana velkomna aftur í KR fjölskylduna," segir á Instagram síðu meistaraflokks kvenna hjá KR.
Athugasemdir