Ashley Young er búinn að opna markareikning sinn í ítölsku úrvalsdeildinni.
Young, sem er 34 ára að aldri, gekk í raðir Inter frá Manchester United í janúarglugganum.
Inter er að spila gegn Lazio í toppslag á Ítalíu í kvöld og er staðan 1-0 í hálfleik. Það var Young, sem leikur í stöðu vinstri vængbakvarðar hjá Inter, sem skoraði eina mark leiksins til þessa undir lok fyrri hálfleiksins.
Markið má sjá hérna.
Young hafði skorað eitt mark í 18 keppnisleikjum með Manchester United á þessu tímabili áður en hann fór til Inter. Það mark gerði hann gegn AZ Alkmaar í Evrópudeildinni.
Athugasemdir