16.02.20 - 19:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steve Bruce: Verður að sleikja sárin og halda áfram

Steve Bruce.

Mynd: Getty Images

Steve Bruce.

Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Newcastle, var svekktur eftir 4-0 tap á útivelli gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.
<i>„Það sem veldur mér vonbrigðum er það að við erum ólíkir sjálfum okkur í mörkunum sem við fáum á okkur. Þetta voru of auðveld mörk,"</i> sagði Bruce.

Eftir markalausan fyrri hálfleik gekk Arsenal á lagið í seinni hálfleik og vann öruggan 4-0 sigur.
„Ég var himinlifandi með hvernig við spiluðum í fyrri hálfleik. Það vantaði hins vegar aðeins upp á sóknarlega. Við vissum að þeir myndu koma áræðnari út í seinni hálfleikinn og við byrjuðum hann ekki vel."
„Þegar þér er skellt svona þá verðurðu að sleikja sárin og halda áfram," sagði Bruce.