31.07.26 - 23:34
Ívan Guðjón Baldursson
Mudryk: Ætlaði aldrei að svindla

Mudryk hefur skorað 10 mörk og gefið 11 stoðsendingar í 73 keppnisleikjum með Chelsea.

Mynd: EPA

Chelsea borgaði 100 milljónir evra til að kaupa Mudryk frá Shakhtar Donetsk.

Mynd: Chelsea

Úkraínski kantmaðurinn Mykhailo Mudryk er loksins kominn úr keppnisbanni eftir að hafa verið dæmdur fyrir ólöglega lyfjanotkun.

TENGT EFNI
Fjögurra ára keppnisbanni Mudryk aflétt
Mudryk hefur ekki spilað keppnisleik í fótbolta í eitt og hálft ár en er klár í slaginn. Hann er 25 ára gamall og enn með fimm ár eftir af langtímasamningi sem hann gerði við Chelsea í janúar 2023.
Hann ferðast til Asíu á sunnudaginn til að taka þátt í æfingaferð með Chelsea og er himinlifandi með að vera kominn úr banni.
„Þetta hefur verið mjög erfiður tími fyrir Misha og við erum himinlifandi með að þessu máli sé loksins að ljúka. Við höfum staðið þétt við bakið á Misha í öllu þessu ferli og staðreyndin er sú að ef hann myndi gangast undir sama próf í dag þá yrði hann ekki dæmdur í bann eftir að tæknilegum reglum var breytt. Það teljum við vera mjög mikilvægt í samhenginu," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Chelsea.
„Misha hefur alltaf haldið því fram að hann hafi ekki misnotað nein efni viljandi og að hann viti ekki hvernig þessi efni hafi ratað í líkamann hans. Hann hefur hagað sér af mikilli fagmennsku í gegnum allt þetta ferli þó að þetta hafi verið einn af mest krefjandi köflum lífs hans. Núna stefnum við að því að hjálpa Misha að komast aftur inn í liðið og út á fótboltavöllinn."
Mudryk sjálfur er í sjöunda himni og gaf einnig út yfirlýsingu.
„Ég get sett ferilinn í gang að nýju eftir langa baráttu. Ég er þakklátur fyrir niðurstöðuna sem fékkst í málið og ég get loksins byrjað að horfa aftur til framtíðar. Þetta hefur verið erfiðasti kafli ferilsins hingað til. Ég ætlaði aldrei að svindla með að taka inn ólögleg lyf, það er eitthvað sem ég hef alltaf verið á móti.
„Ég vil þakka vinum og vandamönnum fyrir stuðninginn á erfiðu tímabili í mínu lífi. Ég er þakklátur öllum hjá Chelsea sem hafa staðið við bakið á mér í gegnum allt þetta ferli og ég vil að lokum þakka lögmannateyminu og öðrum sem hjálpuðu til við málaferlin.
„Nú fer öll mín einbeiting í að snúa aftur á fótboltavöllinn."