Fotbolti.net
16.02.26 - 13:50
Kári Snorrason

Hefur miklar áhyggjur af KA - „Enginn leikmaður á Íslandi sem leysir Ívar af“

Ívar Örn var tilkynntur hjá Breiðabliki fyrr í dag.

Ívar Örn var tilkynntur hjá Breiðabliki fyrr í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Örn Árnason hefur nú formlega gengið í raðir Breiðabliks frá KA. Ívar var fyrirliði liðsins á síðasta tímabili og er ljóst að það er mikil blóðtaka fyrir KA að missa Ívar.

„Þeir þurfa miðvörð og það er ekkert grín að fylla í skarð Ívars. Það er ekki mikið úrval af miðvörðum í íslenska boltanum,“ sagði Elvar Geir Magnússon meðal annars í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðastliðinn laugardag.

„Það er enginn leikmaður á Íslandi sem leysir Ívar Örn Árnason af fyrir KA. Nú þarf KA að fara ákveða sig, á að taka næsta unga strák inn og reyna blóðga fleiri Norðanmenn?“ Sagði Tómas Þór jafnframt í útvarpsþættinum.
Breiðablik kaupir Ívar Örn (Staðfest)
TENGT EFNI

Breiðablik kaupir Ívar Örn (Staðfest)

KA hefur misst marga lykilmenn frá síðasta ári, en félagið hefur sótt Diego Montiel, Jeppe Pedersen og Jakob Héðin í vetur.

Albert Brynjar Ingason sagði í hlaðvarpinu Dr.Football í gær hafa miklar áhyggjur af Norðanmönnum og telur þá þurfa styrkingar í nær allar stöður á vellinum.

„Þeim vantar markvörð, hafsent, bakvörð, miðjumann og framherja. Þeim vantar eiginlega allt. Ég hef mjög miklar áhyggjur af KA-liðinu. Þetta er sama mynstur og maður hefur séð síðustu tvö tímabil. Í fyrra unnu þeir einn leik í fyrstu sjö umferðunum og einn leik í fyrstu tíu þar áður.

Þeir fá menn seint inn og þá fer liðið að tikka. Þeir fengu Marcel Römer og Birni Snæ seint inn á síðasta tímabili. Mér fannst glugginn byrja ágætlega núna en ef maður horfir á mennina sem eru farnir þá eru þetta rosalega margir lykilmenn. Það er búið að pikka stóra pósta af þeim ár eftir ár en lítið sem hefur komið í staðinn,“
sagði Albert.

KA
Komnir:
Diego Montiel frá Vestra
Jeppe Pedersen frá Vestra
Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
Kári Gautason frá HK (var á láni)
Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Hákon Atli Aðalsteinsson frá Dalvík/Reyni (var á láni)
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)

Farnir:
Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
Marcel Römer til Danmerkur
Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
Jonathan Rasheed til Gautaborgar
Viðar Örn Kjartansson
Andri Fannar Stefánsson
Dagur Ingi Valsson í Keflavík
William Tonning til Svíþjóðar
Ívar Örn Árnason til Breiðabliks
„Það er búið að pikka stóra pósta af þeim ár eftir ár en lítið sem hefur komið í staðinn.“

„Það er búið að pikka stóra pósta af þeim ár eftir ár en lítið sem hefur komið í staðinn.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Farið yfir sviðið með Eysteini

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.