' Hann fer úr því að vera kannski ekki tilbúinn í úrvalsdeild í það að vera flottur prófíll. Hann er búinn að vinna titil með okkur, stóð sig vel í Evrópu og er orðinn frábær leikmaður'
'Ég vona að flestir í KA vilji vera í betra liði, sérstaklega þeir ungu því yngri sem þú ert áttu að stefna hærra finnst mér'
Hans Viktor Guðmundsson - 'Við erum ekkert á flæðiskeri staddir, við erum með Hans sem var gjörsamlega frábær í gær og hann er að fara út með landsliðinu að spila - strákur sem við tókum úr fyrstu deild fyrir nokkrum árum'
Ívar Örn Árnason var í dag seldur frá uppeldisfélagi sínu KA til Breiðabliks. Fyrirliðinn er búinn að kveðja Brekkuna í bili og heldur suður yfir heiðar.
Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson (Hadda), þjálfara KA, um brotthvarf Ívars í dag.
Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson (Hadda), þjálfara KA, um brotthvarf Ívars í dag.
Munu sjá á eftir Ívari
Hvernig líður þér með þetta?
„Það eru blendnar tilfinningar. Ívar hefur verið mikilvægur fyrir okkur, ég man að hann var ekki á þessum stað þegar ég kom í KA. Við höfðum trú á honum og unnum vel með hann. Hann fer úr því að vera kannski ekki tilbúinn í úrvalsdeild í það að vera flottur prófíll. Hann er búinn að vinna titil með okkur, stóð sig vel í Evrópu og er orðinn frábær leikmaður. Það er vont að missa hann, en hann óskaði eftir því að fara og við munum sjá á eftir honum. Á sama tíma er þetta tækifæri fyrir unga leikmenn að stíga upp. Í gær spiluðum við með þriggja manna vörn án Ívars og héldum hreinu gegn Víkingi."
„Ég lít ekkert alltof neikvætt á þetta, hann vildi fara og við fáum pening fyrir hann. Hann átti innan við ár eftir samningi. Svona er bara gangurinn í þessu. Við munum skoða okkar mál í rólegheitum, viljum sjá hversu langt ungu strákarnir okkar eru komnir. Ég fékk frábær svör frá nokkrum í gær. Við vorum að mæta besta liði Íslands og nokkrir ungir strákar stóðu sig ótrúlega vel."
„Það er búið að kalla aðeins eftir því í fjölmiðlum að KA spili ungum strákum, svo spilum við ungum og þá skilja fjölmiðlar ekkert í því að við séum ekki að ná í tíu leikmenn. Það er rosalega erfitt að gera ykkur til geðs. Ég er bara að reyna það," segir Hallgrímur á léttu nótunum.
Mögulegur arftaki að spila vel
Markús Máni Pétursson lék í hjarta varnarinnar hjá KA í gær, hann verður tvítugur í næsta mánuði og kom við sögu í sex leikjum í Bestu deildinni í fyrra.
„Hann er að koma virkilega flott inn. Ég var afreksþjálfari KA, valdi fimmtán stráka í afrekshóp úr þremur árgöngum og hann var ekki þar inni. Það er því voða stutt síðan hann var langt frá þessu. Hann kom inn í fyrra, stóð sig vel, stóð sig frábærlega í nokkrum leikjum. Hann sýndi það í gær að hann er tilbúinn í þetta. Líkamlega er hann rosalega sterkur, fljótur og harður. Svo er hann alltaf að verða betri í taktíkinni og á boltann. Hann sýndi okkur í fyrra að hvað hann gæti og í vetur er hann búinn að taka fínt skref upp á við. Hann er kominn á flottan stað og mun 100% fá hlutverk í sumar."
Töldu rétt að sætta sig við söluna
Hallgrímur sagði að Ívar hefði óskað eftir því að fá að fara. Það var ekki séns að halda honum og missa hann svo frítt eftir tímabilið?
„Jú, örugglega. Hann var á samningi og það hefði alveg verið hægt. Við töldum bara rétt að í staðinn fyrir að hann rynni út á samningi og færi frítt - það gerðist nú í fyrra bæði með Danna og Svenna og ekki allir paránægðir með það - að fá þá pening fyrir hann."
„Við erum búnir að gera helvíti marga hluti fyrir Ívar Örn og hann búinn að standa sig vel fyrir okkur. Ef menn vilja fara eitthvað annað þá verður maður stundum að sætta sig við það, menn fara þá og við fáum eitthvað annað í staðinn. Við leysum þetta."
„Ég vona að Ívari gangi vel í Breiðabliki, hann er með kærustu sem er að sunnan og hefur verið lengi með honum hérna fyrir norðan. Þau töldu þetta rétt skref fyrir sig. Það er bara flott mál og svo bara áfram gakk."
Vonar að flestir í KA liðinu vilji vera í betra liði
Finnst þér leiðinlegt að menn vilji fara annað?
„Nei, alls ekki. Ég vona að flestir í KA vilji vera í betra liði, sérstaklega þeir ungu því yngri sem þú ert áttu að stefna hærra finnst mér. Ef við, sem lið úti á landi, ætlum að halda okkur í úrvalsdeild þá viljum við að leikmenn okkar geri vel. Þegar þeir gera vel þá munu lið alltaf vilja plokka í þá. Þannig er bara gangur lífsins."
„Þetta er tíunda árið í röð sem KA er í úrvalsdeild, liðið hefur aldrei verið neðar en í 7. sæti. Ég væri til í að fjölmiðlar myndu fjalla aðeins um það. Það hefur ekkert annað lið utan af landi gert þetta á þessum tíma. Það er ótrúlega margt jákvætt búið að gerast."
„Það er alveg á hreinu að það er viss kjarni sem er orðinn eldri og sumir of gamlir. Núna þurfa nýir að koma inn og ungir og efnilegir strákar eru komnir á þann stað að þeir eiga að taka við keflinu."
„Mér finnst mjög eðlilegt að menn vilja stefna hærra, en ef þú spyrð mig þá myndi ég að sjálfsögðu frekar vilja selja leikmann erlendis heldur en innanlands. Það er því miður ekki alltaf hægt. Við höfum bæði selt menn erlendis og innanlands undanfarin ár - og svo tóku Víkingar tvo af okkur frítt í fyrra. Valur fær núna Ingimar Stöle sem við erum búnir að gera að úrvalsdeildarleikmanni. Birnir kom til okkar í hálft ár og er farinn suður. Þetta er bara gangurinn í þessu, hvort sem það er KA eða önnur lið utan af landi. Við þurfum bara að gera það sem við getum í stöðunni hverju sinni. Ég fékk allavega flott svar í gær á móti frábæru liði Víkings. Þeir sem komu inn stóðu sig vel."
Möguleiki en ákvörðun ekki verið tekin
Þú talar um að þú viljir sjá hvar ungu strákarnir standa. Ertu búinn að taka ákvörðun í höfðinu að þú þurfir að fá einn reynslumeiri varnarmann inn í hópinn?
„Nei, ég er ekki búinn að ákveða það. Við munum skoða það núna á næstunni. Undanfarin ár þegar við höfum spilað með þriggja manna vörn þá hefur Rodri farið niður í vörnina. Í gær spiluðu Hans Viktor, Markús og Guðjón. Það er ekki búið að ákveða neitt, en það er ekki útilokað að við munum skoða mann í þessa stöðu."
Ætlar að fá inn 2-3 leikmenn
Ertu að leita að styrkingu einhvers staðar á vellinum?
„Við ætlum að fá allavega tvo sterka menn inn í hópin, gæðaleikmenn sem komast í liðið okkar og styrkja okkur. Þá erum við orðnir mjög flottir."
„Í gær kom Snorri Kristinsson snemma inn hjá okkur og var gjörsamlega frábær í leiknum, Valdimar Logi stóð sig mjög vel og Markús stóð sig mjög vel í vörninni. Bjarki Fannar (2005) kom inn á og stóð sig mjög vel. Þeir eru komnir í stærra hlutverk og eðlilega. Við þurfum á einhverjum tímapunkti að leyfa þeim sem eru við það að verða tilbúnir að fá stærra hlutverk, þannig þroskast menn. Við erum komnir þangað með nokkuð marga unga. Eins með Ívar í markinu, hann spilaði gegn ÍR og er yngsti markmaður á Íslandi sem er búinn með tvö heil tímabil - í fyrstu og annarri deild. Það eru flottir strákar að koma upp, svo þarf að finna út hvernig er best að spila og stilla væntingarnar rétt. Svo þurfum við að fá 2-3 gæðaleikmenn inn."
Ekki svona svart og hvítt
Hallgrími finnst liðið heilt yfir í betra standi en á sama tíma í fyrra. Þjálfarinn er meðvitaður um umræðu um hæga byrjun KA liðsins undanfarin tímabil.
„Já, það er búið að vera minna um meiðsli. En leiðinlegt með Hrannar sem slítur hásin og Ásgeir. En standið á hinum er betra. Mér finnst samt of mikið talað um þetta. Ef þú tapar leikjum þá eru hlutir að, en þegar þú vinnur leiki þá ertu bestur í heimi. Þetta er ekki svona svart og hvítt. Það kæmi mér á óvart ef einhver úrvalsdeildarlið í dag væru ekki að æfa vel. Ef menn hugsa eðlilega um sig utan vallar þá ættu menn í öllum liðum að vera í góðu formi þegar tímabilið byrjar."
Beðið er eftir nánari svörum varðandi hnémeiðsli Ásgeirs Sigurgeirssonar, Hrannar Björn Steingrímsson sleit hásin og verður ekki með fyrr en í fyrsta lagi í lok móts og Jakob Snær Árnason ætti að snúa aftur í fótbolta í æfingaferðinni í lok mánaðar.
Hugsaði ekki um möguleikann
Það hefur verið slúðrað um að KA hafi gefið Ívari þau svör eftir að tilboði Breiðabliks var hafnað í janúar í fyrra að hann fengi að fara í vetur.
Hugsaðir þú komandi inn í veturinn að það væri möguleiki á því að Ívar færi?
„Ég hugsaði það ekki neitt. Örugglega var stjórnin eitthvað að hugsa um það, ég veit það ekki, ég er mjög lítið að spá í svona málum. Svona er bara fótbolti. Ég veit að þegar menn spila vel yfir lengri tíma þá er plokkað í þá. Við missum yngri frábæra gaura á sínum tíma. Þannig er bara fótboltinn. Við erum ekki efstir í fæðukeðjunni, hvorki á Íslandi né erlendis. Þetta er eitthvað sem ég býst við."
„Við erum ekkert á flæðiskeri staddir, við erum með Hans sem var gjörsamlega frábær í gær og hann er að fara út með landsliðinu að spila - strákur sem við tókum úr fyrstu deild fyrir nokkrum árum. Við erum með Guðjón og Kára í bakverðinum hægra megin, Birgi Baldvinsson og Breka Hólm vinstra megin. Biggi var í fyrra að jafna sig eftir aðgerð á þessum tíma og Breki fór á láni til ÍR. Þetta er bara allt í góðu og áfram gakk, ég hef ekki stórar áhyggjur af þessu."
Óvíst hver verður fyrirliði
Ertu búinn að ákveða hver verður fyrirliði liðsins?
„Nei, ég er ekki búinn að ákveða það. Þetta hefur verið þannig að Ívar hefur verið fyrirliði, Ásgeir númer tvö, Biggi Bald númer þrjú og fyrirliði ungu leikmannanna hefur verið Mikael Breki. Þetta er eitthvað sem við setjumst bara yfir núna og skoðum. Við tökum fund og finnum bestu lausn," segir Hallgrímur að lokum.
Athugasemdir



