16.03.15 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ísak Már tekur við Hvíta Riddaranum (Staðfest)

Ísak Már, Arnar Ingi Valsson formaður, Sigubjartur og Haukur.

Mynd: Hvíti Riddarinn

Ísak Már Friðriksson og Hvíti Riddarinn hafa gengið frá samkomulagi þess efnis að Ísak Már verði nýr þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu. Tekur hann við liðinu af fráfarandi þjálfara Sigurbjarti Sigurjónssyni sem hefur þjálfað liðið undanfarin þrjú ár.
Ísak Már er menntaður íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur þar að auki lokið UEFA-B þjálfaragráðu auk fjölda annarra námskeiða sem lúta að knattspyrnu.
Þá hefur Ísak Már þjálfað yngri flokka Aftureldingar í mörg ár og getið sér gott orðspor fyrir störf sín á þar. Ísak mun halda áfram að þjálfa í yngri flokkum Aftureldingar og munu félögin starfa saman að því að Ísak geti sinnt báðum verkefnum.
Honum til halds og traust verður Haukur Eyþórsson, leikja- og markahæsti leikmaður Hvíta Riddarans frá upphafi. Haukur stígur sín fyrstu skref í þjálfun og er það fagnaðarefni fyrir félagið að Haukur sé tilbúinn að leggja, ekki bara á sig vinnu innan vallar, heldur utan líka, segir í fréttatilkynningu frá Hvíta Riddaranum.
Sigurbjartur Sigurjónsson tekur að sér stöðu yfirþjálfara hjá félaginu og mun sinna verkefnum fyrir bæði karla og kvenna lið félagsins.