16.03.15 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Yngsti leikmaður í sögu Liverpool lánaður til Wigan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur lánað framherjann Jerome Sinclair til Wigan í Championship deildinni.
Þessi 18 ára gamli leikmaður hefur skorað 22 mörk á tímabilinu með unglingaliði Liverpool.
Í september 2012 varð Sinclair yngsti leikmaðurinn í sögunni til að spila með aðalliði Liverpool þegar hann kom inn á sem varamaður gegn WBA í enska deildabikarnum.
Wigan er í basli í Championship deildinni en liðið er í 22. sæti, sex stigum frá öruggu sæti þegar níu umferðir eru eftir.