16.03.17 - 10:52
Magnús Már Einarsson
Karanka hættur með Middlesbrough (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aitor Karanka er hættur sem knattspyrnustjóri Middlesbrough. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að báðir aðilar hafi verið sammála um að láta leiðir skilja.
Middlesbrough hefur verið á niðurleið undanfarna mánuði en liðið vann síðast deildarleik í desember.

Liðið er núna í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti.
Hinn 43 ára gamli Karanka tók við Middlesbrough árið 2013 en hann kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrra.
Karanka spilaði í vörn Real Madrid á ferli sínum en hann varð síðar aðstoðarþjálfari félagsins þegar Jose Mourinho var þar við stjórnvölinn.