Fotbolti.net
16.03.17 - 11:02
Elvar Geir Magnússon

Matt Garner verður með ÍBV í sumar (Staðfest)

Garner verður með Eyjamönnum í Pepsi-deildinni.

Garner verður með Eyjamönnum í Pepsi-deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matt Garner verður áfram hjá ÍBV en hann skrifaði undir árs samning við félagið í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eyjamönnum.
Matt er 32 ára vinstri bakvörður og spilaði 206 leiki með ÍBV 2004 -2014 og skoraði 5 mörk áður en hann fótbrotnaði illa í leik á móti Keflavík undir lok tímabilsins 2014.

Síðasta sumar var Matt lánaður til KFS í 3. deildinni til þess að koma sér í gang aftur eftir meiðslin og telur hann sig vera kominn í gott form aftur og á mikið inni.

„Mikil ánægja er að samningar náðust við þennan reynda leikmann við berum við miklar væntingar til hans á komandi tímabili,\" segir í tilkynningunni.

„Ég er í betra formi en í fyrra. Ég spilaði með KFS í fyrra til að sjá hvort ég gæti spilað eftir fótbrotið. Það gekk ágætlega og mér líður mun betur í ár. Ég veit af meiðslunum en þau trufla mig ekki og þau hræða mig ekki heldur,\" sagði Garner við Fótbolta.net á dögunum en viðræðurnar við ÍBV tóku sinn tíma.

ÍBV hafnaði í 9. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.