Fotbolti.net
16.03.17 - 07:00
Elvar Geir Magnússon

Sveinbjörn aftur til Þróttar (Staðfest)

Sveinbjörn er mættur aftur í Þrótt.

Sveinbjörn er mættur aftur í Þrótt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Austfirðingurinn Sveinbjörn Jónasson skrifaði undir árs samning við Þrótt Reykjavík en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Sveinbjörn er þrítugur sóknarmaður sem lék síðast með Þrótti í 1. deildinni árið 2013 þegar hann skoraði 8 mörk í 21 leik en áður hafði hann skorað 19 mörk í 22 leikjum í deildinni tímabilið 2011 og 8 mörk í bikarnum á sama tímabili í 4 leikjum.

„Þróttarar fagna endurkomu Sveinbjörns í félagið og væntir mikils af honum í baráttunni í Inkasso deildinni í sumar. Velkominn Sveinbjörn, lifi Þróttur!\" segir á heimasíðu Þróttar.

Í fyrra spilaði Sveinbjörn fimm leiki með KH í neðstu deild en áður hefur hann leikið með Fram, Grindavík, Fjarðabyggð og Huginn ásamt Þrótti.

Þróttur leikur í Inkasso-deildinni í sumar eftir að hafa fallið úr Pepsi-deildinni í fyrra.

Komnir:
Birkir Þór Guðmundsson frá Aftureldingu
Daði Bergsson frá Val
Grétar Sigfinnur Sigurðarson frá Stjörnunni
Hlynur Hauksson, tekur fram skóna
Rafn Andri Haraldsson, tekur skóna af hillunni
Viktor Jónsson frá Víkingi R.
Sveinbjörn Jónasson frá KH

Farnir:
Aron Lloyd Green erlendis í nám
Baldvin Sturluson í Hauka
Björgvin Stefánsson í Hauka (Var á láni)
Christian Nikolaj Sorensen til Danmerkur
Guðmundur Friðriksson í Breiðablik (Var á láni)
Hallur Hallsson hættur
Ragnar Pétursson erlendis í námi
Sebastian Svard
Thiago Borges Pinto
Trausti Sigurbjörnsson í Hauka
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.