Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. mars 2023 23:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikar kvenna: Grindavík valtaði yfir Fram
Tinna Hrönn Einarsdóttir skoraði tvö fyrir Grindavík
Tinna Hrönn Einarsdóttir skoraði tvö fyrir Grindavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 0 - 6 Grindavík
0-1 Þuríður Ásta Guðmundsdóttir ('13 )
0-2 Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('17 )
0-3 Viktoría Sól Sævarsdóttir ('45 )
0-4 Tinna Hrönn Einarsdóttir ('58 )
0-5 Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('80 )
0-6 Tinna Hrönn Einarsdóttir ('82 )
Rautt spjald: Erika Rún Heiðarsdóttir , Fram ('64)


Fram og Grindavík áttust við í B deild Lengjubikars kvenna í kvöld en Fram hafði tapað öllum þremur leikjum sínum til þessa og Grindavík með þrjú stig eftir tvo leiki.

Grindavík var með 3-0 forystu í hálfleik og Tinna Hrönn Einarsdóttir bætti fjórða markinu við eftir tæplega klukkutíma leik, stuttu síðar var Erika Rún Heiðarsdóttir rekin af velli í liði Fram.

Manni fleiri skoruðu Grindvíkingar tvö mörk í viðbót og fóru að lokum með 6-0 sigur af hólmi.

Grindavík er því í 3. sæti með sex stig en FHL og Fylkir eru með þrjú stig og eiga leik til góða. Fram er á botninum eina liðið án stiga.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner