Rodri: Þeir sköpuðu varla færi og komust ekki yfir miðju

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Rodri var ekkert sérstaklega hrifinn af leikstíl Grænhöfðaeyja í markalausa jafnteflinu gegn Spáni á heimsmeistaramótinu í kvöld.

TENGT EFNI
HM: Evrópumeistararnir fundu ekki leið framhjá fertugum Vozinha
Grænhöfðaeyjar beittu gríðarlega öguðum varnarleik og þá varði Vozinha, markvörður liðsins, sjö sinnum frá spænska liðinu, sem er eitt það besta í heimi.
Grænhöfðaeyjar fögnuðu stigi í sínum fyrsta leik á HM, en það kostaði blóð, svita og tár.
Rodri var ósáttur með nýtinguna hjá spænska landsliðinu í leiknum og kvartaði aðeins yfir leikstíl mótherjanna.
„Þetta átti einfaldlega ekki að verða. Það er lítið hægt að kvarta yfir.“
„Við vissum að þetta yrði þolinmæðisvinna. Þeir sátu til baka og voru fljótir niður í vörnina. Við náðum ekki að setja boltann í markið. Við sköpuðum okkur færi en gátum ekki nýtt þau. Það jákvæða er að þeir sköpuðu sér varla færi gegn okkur, en við þurfum að bæta færanýtinguna.“
„Svona spila þeir. Þeir fara ekki yfir miðju, en við þurfum fyrst og fremst að bæta nýtinguna,“ sagði Rodri við La1.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!