Sjáðu markið: Óvænt byrjun í Miami

Al Amri skoraði fyrsta mark leiksins

Mynd: EPA

Al Amri skoraði fyrsta mark leiksins

Mynd: EPA
Sádi-Arabía er óvænt komið í 1-0 forystu gegn Úrúgvæ á Hard Rock-leikvanginum í Miami.
Það er kannski ekkert svo óvænt ef horft er á síðasta heimsmeistaramót er Sádarnir unnu óvæntan sigur á Argentínu í fyrsta leik.
Þeir hafa verið að sækja hart að marki Úrúgvæa á síðustu mínútunum. Abulelah Al Amri hafði átt skot sem Fernando Muslera varði og aðeins fáeinum mínútum síðar kom hann þeim yfir.
Muslera varði tilraun Sádana eftir hornspyrnu áður en Al Amri mætti í frákastið og potaði boltanum í netið.
Sjáðu markið hér

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!