Fotbolti.net
15.06.26 - 22:01
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham í baráttuna um Tonali

Tottenham í baráttuna um Tonali
Canon

Mynd: EPA

Tottenham hefur skráð sig í baráttuna um ítalska miðjumanninn Sandro Tonali, sem er á mála hjá Newcastle United. Fabrizio Romano segir frá þessu á X í kvöld.
Arsenal og Manchester City hafa lýst yfir áhuga á Sandro Tonali, sem gæti verið falur í sumar.

Newcastle spilar ekki í Evrópukeppni á næsta tímabili og hefur það fjárhagslegar afleiðingar. Félagið seldi Anthony Gordon til Barcelona á dögunum og gæti Tonali verið næsti maður út.

Talið er að Newcastle vilji fá 100 milljónir punda fyrir hann en samkvæmt Fabrizio Romano verður baráttan hörð. Tottenham hefur nú formlega skráð sig í baráttuna, en Roberto De Zerbi, stjóri félagsins, vill ólmur fá hann til Lundúna.

Tottenham hefur þegar gengið frá tveimur félagaskiptum, en Andy Robertson og Marcos Senesi eru komnir á frjálsri sölu frá Liverpool og Bournemouth. Þá hefur félagið framlengt við spænska bakvörðinn Pedro Porro.

Liðið bjargaði sér frá falli undir lok síðasta tímabils en er stórhuga í sumar og ætlar að ganga úr skugga um að frammistaða síðasta tímabils endurtaki sig ekki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.