Þór hefur mikinn áhuga á Guðmundi Andra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Eva Rós Ólafsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net mikinn áhuga á því að fá Guðmund Andra Tryggvason (1998) í sínar raðir.
Guðmundur Andri er leikmaður KR, hann er uppalinn KR-ingur og var keyptur til félagsins fyrir tæpum tveimur árum síðan frá Val.
Hann er samningsbundinn KR út tímabilið 2029 og þarf Þór því að kaupa hann til að fá hann norður. Félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí. Ef hann færi norður myndi hann hitta fyrir fyrrum liðsfélaga sína, þá Atla Sigurjónsson (KR) og Ágúst Eðvald Hlynsson (Val og Víkingi).

Guðmundur Andri er sóknarmaður sem á að baki 33 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði á síðasta tímabili þrjú mörk í 17 leikjum (níu í byrjunarliði) fyrir KR.
Hann hefur komið við sögu í þremur síðustu leikjum KR eftir að hafa ekki spilað í átta leikjum þar á undan.
Árni Vill orðaður við Þór
Í útvarpsþættinum Fótbolta.net var framherjinn Árni Vilhjálmsson (1994) orðaður við Þór en hann hefur einnig verið orðaður við Víking, KR og Breiðablik. Árni er með lausan samning eftir að hafa spilað síðustu tvö ár í Sádi-Arabíu.