Fotbolti.net
16.03.25 - 22:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ítalía: Þrjú rauð spjöld í sigri Inter í toppslag

Ítalía: Þrjú rauð spjöld í sigri Inter í toppslag
Canon

Mynd: EPA

Atalanta 0 - 2 Inter
0-1 Carlos Augusto ('54 )
0-2 Lautaro Martinez ('87 )
Rautt spjald: ,Ederson, Atalanta ('81)Alessandro Bastoni, Inter ('90)
Inter náði þriggja stiga forystu á toppnum í ítölsku deildinni þegar liðið vann Atalanta í fjörugum leik.

Staðan var markalaus í hálfleik en Carlos Augusto kom Inter yfir snemma í seinni hálfleik þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu.

Þegar tæpar tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma fékk Ederson, miðjumaður Atalanta, rautt spjald. Honum fannst vera brotið á sér og fékk gult spjald fyrir kjaftbrúk. Hann klappaði fyrir dómaranum í kjölfarið og fékk annað gult spjald og þar með rautt.

Lautaro Martinez bætti öðru markinu við fyrir Inter og stuttu síðar fékk Gian Piero Gasperini, stjóri Atalanta, rautt spjald fyriri kjaftbrúk.

Dómari leiksins var ekki hættur að lyfta síðasta rauða spjaldinu upp. Í uppbótatíma fékk Alessandro Bastoni rautt spjald fyrir brot á Daniel Maldini.

Inter er á toppnum með 64 stig, þremur stigum á undan Napoli sem gerði óvænt jafntefli gegn Venezia í dag. Atalanta er í 3. sæti með 58 stig.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.