Lille 1 - 1 Montpellier
0-1 Andy Delort ('21)
1-1 Luiz Araujo ('85)
0-1 Andy Delort ('21)
1-1 Luiz Araujo ('85)
Það er mikil spenna um titilinn í Frakklandi en Lille mun halda toppsæti deildarinnar áfram eftir úrslit kvöldsins.
Það fór fram einn leikur í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld er Lille tók á móti Montpellier.
Gestirnir tóku forystuna í leiknum um miðbik fyrri hálfleiks og var staðan 0-1 í hálfleik. Lengi vel stefndi í sigur Montpellier en Lille náði að jafna þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Markið gerði Brasilíumaðurinn Luiz Araujo.
Lille var svo sannarlega sterkari aðilinn í þessum leik og þeir eru væntanlega mjög svekktir með úrslitin þrátt fyrir að þeir verði áfram á toppnum. PSG getur minnkað forskotið með sigri á Saint-Etienne á sunnudag. Mónakó er einu stigi á eftir PSG, og Lyon einu stigi á eftir Mónakó. Montpellier er í áttunda sæti deildarinnar.
Athugasemdir