Fotbolti.net
16.04.25 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sædís tapaði í Íslendingaslag

Sædís Rún Heiðarsdóttir

Sædís Rún Heiðarsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Sædís Rún Heiðarsdóttir var í byrjunarliði Valerenga þegar liðið tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu.

Liðið heimsótti Rosenborg í norsku deildinni í dag kvöld. Rosenborg komst yfir í fyrri hálfleik og bætti öðru markinu við snemma í seinni og þar við sat. Selma Sól Magnúsdóttir var ekki í leikmannahópi Rosenborg.
Valerenga er í 3. sæti eftir fjórar umferðir með níu stig. Rosenborg er í 4. sæti með jafn mörg stig.

Telma Ívarsdóttir var ekki í leikmannahópi Rangers þegar liðið vann Glasgow City í efstu deild í Skotlandi. Rangers er á toppnum með eins stigs forystu á Hibernian eftir 26 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.