Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
banner
   fim 16. apríl 2026 16:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Kvenaboltinn
Mynd: Ármann Hinrik
Pernille Harder á Þórsvellinum 2018.
Pernille Harder á Þórsvellinum 2018.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrirmyndin.
Fyrirmyndin.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Plús góður feldur.
Plús góður feldur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hörpu boðið í mat og er skemmtileg í klefa.
Hörpu boðið í mat og er skemmtileg í klefa.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Arna öflug í klefanum og myndi klára af disknum.
Arna öflug í klefanum og myndi klára af disknum.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Hulda Ósk er uppalin hjá Völsungi en skipti yfir í KR fyrir rúmum áratug síðan og fór síðan í Þór/KA fyrir tímabilið 2016 og hefur verið þar síðan. Hún spilaði í öllum leikjum Þórs/KA á síðasta tímabili.

Kantmaðurinn áræðni á að baki 29 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim sex mörk. Í dag sýnir Hulda á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Hulda Ósk Jónsdóttir

Gælunafn: Hulli og aumingi

Aldur: 29 ára

Hjúskaparstaða: Sambúð

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: með Völsung 2012, man ekkert

Uppáhalds drykkur: eitthvað með klökum

Uppáhalds matsölustaður: North Akureyri

Uppáhalds tölvuleikur: Crash bandicoot

Áttu hlutabréf eða rafmynt: nei

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Game of Thrones, fyrstu 17 seríunar af Grey’s og Kardashian’s

Uppáhalds tónlistarmaður: Bríet er flott

Uppáhalds hlaðvarp: hlusta ekkert á svoleiðis

Uppáhalds samfélagsmiðill: TikTok

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Outlookið

Fyndnasti Íslendingurinn: Logi Páll

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Sorry, I can’t talk right now

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: FHL er held ég alveg útaf borðinu

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Pernille Harder

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Marti sem þjálfaði mig í Notre Dame var flottur og Jói Kristinn

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: engin ein sem mér dettur í hug

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Fernando Torres

Sætasti sigurinn: þegar við unnum FH í síðasta leik tímabilsins og urðum Íslandsmeistarar 2018

Mestu vonbrigðin: hafa aldrei í lífinu komist í úrslit í bikar

Uppáhalds lið í enska: Liverpool en fer bráðlega að halda með Arsenal

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: það væri frábært að fá alla Akureyringana aftur heim.

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Bríet Fjóla

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Hólmar í val

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Bríet Jóhanns, tala nú ekki um í feldinum sínum

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Eiður Smári

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Innköst er eitthvað það allra leiðinlegasta en er ekki með neina lausn á því

Uppáhalds staður á Íslandi: Sófinn

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: þegar við kepptum á móti Blikum heima einu sinni, það fór ýmislegt úrskeiðis í þeim leik, þeir vita sem vita

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: nei ekkert svoleiðis

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: ég horfi á allt sem er fyrir framan mig og finnst flest skemmtilegt

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike air zoom mercurial Vapor

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: mjög slöpp í stærðfræði og textílmennt

Vandræðalegasta augnablik: Líður oft mjög vandræðalega þegar ég geri einhverja vitleysu á vellinum en annars man ég ekki eftir einu merkilegu

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Hörpu, Huldu B og Örnu Sif þær myndu klára af disknum sínum og vita hvað þær segja

Bestur/best í klefanum og af hverju: Harpa og Arna Sif eru skemmtilegar

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Eva, Blö og Birgitta myndu standa sig með prýði í Love Island og gera okkur og þjóðina stolta

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Æfði Karate og er enn sleip í því

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Eva Dolina kemur mér sífellt á óvart

Hverju laugstu síðast: Nú er ég ekki alveg viss en líklega hefur þá verið að mér finnist eitthvað vont og sagt að það væri gott

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: 3vs2 og einhver possession game

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: myndi spyrja Alla af hverju ég tek ekki aukaspyrnur

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Það verður gaman, gerum þetta saman
Slapp
banner