Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 15:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: KSÍ 
Þór og Víkingur sektuð - Enginn greinarmunur á blysum
Reykblys
Reykblys
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þórsarar með blys í stúkunni á Hlíðarenda.
Þórsarar með blys í stúkunni á Hlíðarenda.
Mynd: Toggipop
Þór og Víkingur hafa fengið sekt frá KSÍ eftir að aga- og úrskurðarnefnd komu saman í vikunni. Sektirnar koma til vegna notkunar á blysum í stúkunni á leikjum liðanna í Bestu deildinni.

Víkingur fékk sekt að fjárhæð kr. 150.000,- fyrir tvö blys stuðningsmanna í leik gegn Breiðablik á Víkingsvelli og Þór fékk sekt að fjárhæð kr. 250.000,- fyrir fjögur blys stuðningsmanna í leik gegn Val á N1-vellinum.

Hér neðst má nálgast viðtal við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, sem tjáði sig um stemninguna á Víkingsvelli og var hann m.a. spurður út í blysin.

Úr úrskurði vegna blysa á Víkingsvelli
„Þetta var ekki gert í samráði við forsvarsfólk félagsins né með samþyki félagsins. Eins og segir réttilega í skýrslunni var um að ræða reykblys, en þau eru talin skaðlaus og framkalla einungis reyk en ekki eld. Blysin eru t.d. notuð í kvikmyndagerð og í leikhúsum. Þannig var ekki um að ræða eldblys eða neyðarblys eins og hafa sést áður á leikjum hér á landi og sektað hefur verið fyrir. Reykblys hafa verið notuð vísvegar um Evrópu á knattspyrnuleikjum og teljast þau ekki vera hættuleg fólki eða öðrum áhorfendum. Þess vegna hefur notkun þeirra almennt verið samþykkt við slíkar aðstæður. Aga- og úrskurðarnenfnd KSÍ hefur áður sektað fyrir notkun eldblysa með vísan til D liðar greinar 13.9 í reglugerð um aga- og úrskurðarmál á þeim grundvelli að um hættulega framkomu sé að ræða, en slíkt á ekki við um umrædd reykblys þar sem hætta stafar ekki af þeim," segir m.a. í athugasemdum Víkings.

„Að teknu tilliti til greinargerðarinnar og annarra fyrirliggjandi gagna er það álit aga- og úrskurðarnefndar að ekki verði gerður greinarmunur á reykblysi eða annarri tegund blysa við mat á notkun blysa á knattspyrnuleikjum. Með vísan til framangreinds telst framkoma áhorfenda Víkings R., er kveikt var á blysum í áhorfendastúku, hafa verið vítaverð og hættuleg.," segir í úrskurði nefndarinnar.

Úr úrskurði vegna blysa á Hlíðarenda
„Við sjáum ekki um gæslu á útileikjum okkar og getum við því ekki svarað fyrir hvers vegna gæslumenn á vellinum ræddu ekki við okkar stuðningsmannahóp. Við höfum nú, í kjölfar skýrslunnar sem þið senduð okkur, rætt við stuðningsmannahópinn og samkvæmt því samtali var enginn, hvorki vallarstarfsmenn né gæslumenn, sem komu að máli við stuðningsmannahóp okkar og gerðu athugasemd við að þeir væru með blys með sér. Einnig getum við ekki fundið í reglugerðum KSÍ neinar leiðbeiningar eða reglur um hvað stuðningsmannahópar mega bera með sér í stúku og hvað má ekki. Því óskum við einnig eftir því að fá það á hreint frá ykkur og í kjölfarið munum við ræða við okkar hóp. Við höfum þegar rætt við hópinn um að þetta verði ekki endurtekið," segir m.a. í athugasemdum Þórs.
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Slapp
banner
banner