Fotbolti.net
16.05.19 - 10:15
Arnar Daði Arnarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Alex Freyr framlengir við Fram

Alex Freyr.

Alex Freyr.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex Freyr Elísson hefur framlengt samning sinn við Fram. Þetta var tilkynnt á Facebook-síðu félagsins í gærkvöldi.

Alex sem er fæddur árið 1997 hefur leikið með meistaraflokki Fram frá árinu 2015. Hann lék 18 leiki með liðinu í deild og bikar á síðasta tímabili og skoraði þar þrjú mörk.
„Það er sannri ánægju sem við tilkynnum um að gengið hefur verið frá áframhaldandi samning við okkar eina og sanna Alex Frey Elísson. Hann mun svo sannarlega styrkja okkar hóp fyrir komandi átök í sumar," segir í tilkynningunni frá Fram.

Fram er með þrjú stig að loknum tveimur umferðum í Inkasso-deildinni en Alex Freyr hefur ekkert leikið með liðinu það sem af er tímabilinu.

Fram mætir Haukum í 3. umferð deildarinnar í Safamýrinni í kvöld klukkan 19:15.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.